viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Ég kem hérna upp aftur út af orðum hæstv. utanríkisráðherra varðandi hagsmunagæslu. Það er nefnilega þannig að hagsmunagæslu Íslands þarf einmitt að herða í þessu máli. Það þarf að beita sér hart gagnvart ESB og í EES-nefndinni. Ég vænti þess að það verði gert og það verði fengnar framlengingar á sérlausnum Íslands í flugi eftir árið 2026, það er gríðarlega nauðsynlegt, eða sambærilegum undanþágum til að tryggja jafnræði á innri markaði, það er mjög mikilvægt. Einmitt í umsögnum um málið var töluvert fjallað um þá óvissu sem er eftir árið 2026.