157. löggjafarþing — 48. fundur,  15. des. 2025.

viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.

192. mál
[16:46]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta er mjög áhugaverð umræða. Við erum sammála um að þetta sé slæmt fyrir Ísland, öll í þessum sal, held ég. Við erum sammála um að þetta sé ósanngjarnt gagnvart eyþjóð sem byggir afkomu sína og tilveru á flugsamgöngum og skipasamgöngum. Við erum sammála um það að standa vörð um hagsmuni Íslands. Hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. innviðaráðherra fóru hér yfir það að það er búið að skipa starfshóp, það eru jafnvel væntanlegar einhverjar fréttir af þessu á næstu dögum eins og kom fram, það sé endurskoðun í gangi hjá ESB og að það sé góður hljómgrunnur gagnvart málflutningi Íslands á hinu pólitíska sviði, eins og hæstv. innviðaráðherra nefndi hér áðan. Eigum við þá ekki í þágu hagsmunagæslu fyrir Ísland, hv. þingmenn og ráðherrar, að sameinast um að slá þessu máli á frest og sýna samstöðu Íslands í þessum sal um hagsmuni þess í verki?