viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Ég hef reyndar þá trú að Evrópusambandið muni breyta sinni stefnu á næstu misserum vegna þess að samkeppnishæfni Evrópu er á niðurleið. Í þessu máli kemur það mjög skýrt fram. Hins vegar er tengiflugið mikilvægast fyrir Ísland. Flugið til og frá landinu snýst um tengiflug. 50–60% af farþegunum fara yfir hafið. Það er vandamálið í þessu máli um ETS. Ef við værum hins vegar í alþjóðlega kerfinu þá væri þetta á allt öðrum nótum vegna þess að flugfélögin sem fljúga t.d. frá Bandaríkjunum til Evrópu eru á allt öðrum gjöldum og hafa allt aðra samkeppnishæfni en íslensku flugfélögin, í þessu tilviki Icelandair, áður Play og WOW, og um það snýst málið. Kerfið er þannig og það var samkomulag sem var gert hérna 2023 að í lok árs 2026, eftir eitt ár, ætti að koma fram endurskoðun. Ég hef reyndar þá trú að það færist nú vel inn í árið 2027 en þetta er lykilmál fyrir íslenskt samfélag vegna þess að það er ekkert annað evrópskt ríki, eða kannski þó að víðar væri leitað, sem hefur meiri hagsmuni af flugi en við Íslendingar.