viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir og hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Þegar við ræðum þessi mál þá snýr þetta í rauninni að tvennu. Fyrst snýr þetta að hagsmunagæslu Íslands; það er eilífðarverkefni og það þarf sérstaklega, virðulegi forseti, að gæta hagsmuna okkar gagnvart Evrópusambandinu eins og við höfum fundið illilega fyrir á þessu kjörtímabili. Guð forði okkur frá því að fara þarna inn því að þá færi enn þá meiri orka í að vernda hagsmuni okkar gagnvart embættismannaveldinu í Brussel. En síðan er hitt líka, og þó svo að við tökum mjög lítið af reglugerðahluta Evrópusambandsins inn í okkar löggjöf miðað við ef við værum inni í Evrópusambandinu, þá er Evrópusambandið að dragast aftur úr þegar kemur að samkeppnishæfni. Draghi-skýrslan sýnir það og ýmislegt annað. Auðvitað þurfum við að ræða það af því að við höfum ekki efni á því, virðulegi forseti, að dragast niður með neinum hætti, hvort sem það er í þessu samstarfi eða annars staðar.