fjármálafyrirtæki.
Virðulegur forseti. Við erum hér að gera breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki. Við erum að innleiða CRR III-reglugerðir frá ESB inn í íslensk lög. Það er auðvitað von að fólk spyrji: Hvað þýðir þetta fyrir fólk og almenning í landinu? Það þýðir að vextir munu lækka á meiri hluta fasteignaveðlána. Það eru tvö atriði sem við þurfum að fylgjast með. Annars vegar varðandi áhættu vegna framkvæmdalána en Seðlabankinn hefur komið til móts við þær áhyggjur og lækkað lágmarksframlag lántakenda úr 25% í 20% en við þurfum enn að huga að áhrifum á fyrstu kaupendur og jafnvel að grípa þá kaupendur með öðrum úrræðum. Þetta eru yfirhöfuð mjög góðar breytingar fyrir okkur og almenning í landinu.