fjármálafyrirtæki.
Virðulegur forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um mál sem fjallar um áhættuvogir á lánum. Þau íbúðalán þar sem veðsetningin er ekki mjög há koma mjög vel út úr þessu, og bara gott mál að lækka áhættuvogina þar, en eins og hér hefur komið fram þá eru önnur lán sem koma mun verr út úr þessu þegar verið er að lána til þeirra sem eru með hærri veðsetningu, sem eru oftast fyrstu íbúðarkaupendur, og svo þeir sem eru að framkvæma eignirnar á framkvæmdastiginu. Hærri framkvæmdakostnaður mun leiða til hærra húsnæðisverðs. Því er mjög mikilvægt að stjórnvöld nýti tímann til að finna mótvægisaðgerðir við þessi atriði. En varðandi framkvæmdalánin þá mun þessi 20% regla bara gilda út árið 2027. Það var nú gott að við biðum með þetta í vor og kláruðum þetta ekki þá því að síðan þá hefur þetta einmitt þróast í rétta átt, að Seðlabankinn kom með þessa 20% reglu. Ég brýni stjórnvöld til að vera vakandi með mótvægisaðgerðir út af þessu máli.