157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[17:42]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Já, við ræðum hér enn og aftur skattaorm ríkisstjórnarinnar, ekki kannski beint fyrir fullum þingsal. Ég vil þó hrósa hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir að sitja hér með okkur undir þessari mikilvægu umræðu.

Virðulegur forseti. Þetta er, held ég, þriðja ræða mín. Í síðustu ræðum hef ég verið að ræða það að mér finnst þetta nefndarálit meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar ekki gott. Ég velti hreinlega fyrir mér hvort breytingartillögur þeirra séu þingtækar. Ég fór stóran í því að hneykslast á því að hæstv. fjármálaráðherra hefði ekki dug í sér til að koma hér inn með útfærslu á þessu hvað vörugjaldið varðar en sendi í staðinn inn eitthvert minnisblað sem nefndin túlkar einhvern veginn eins og formlegar breytingartillögur og fer að vinna eftir því. En vegna þess að það er svo margt annað í þessu máli verð ég að komast að í því líka og þá langar mig að byrja á verðlagsuppfærslu krónutöluskatta, eins og það er orðað í nefndarálitinu.

Virðulegur forseti. Ég ætla að fá að vísa í nefndarálit meiri hlutans. Hér segir:

„Hækkunin er 3,7% í samræmi við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarps fyrir árið 2026. Miðað er við áætlaða tólf mánaða breytingu á vísitölu neysluverðs árið 2025 sem er 3,7% samkvæmt þjóðhagsspá Hagstofu Íslands.

Í umsögnum sem bárust nefndinni kom fram það viðhorf að krónutöluskattar ættu ekki að hækka umfram 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.“

Virðulegur forseti. Hér ætla ég að fá að skjóta inn að það er einmitt tillaga okkar Sjálfstæðismanna og það er það sem við höfum verið að praktísera á síðustu árum, að horfa á verðbólgumarkmiðið þegar verið er að fara í þessar krónutöluuppfærslur.

Ég ætla að halda áfram og vitna hér í nefndarálitið, með leyfi forseta:

„Meiri hlutinn tekur undir rökstuðning fjármála- og efnahagsráðuneytis sem fram kemur í minnisblaði þess, dags. 28. október 2025. Þar segir að umrædd gjöld muni með þessu halda verðgildi sínu milli ára í stað þess að rýrna að raunverði.“

Virðulegur forseti. Þessu hafa hv. stjórnarliðar haldið statt og stöðugt fram: Það er svo mikilvægt að skattarnir haldi verðgildi sínu og þeir rýrni nú alls ekki að raunverði.

Virðulegur forseti. Hæstv. forsætisráðherra, þegar hún var hér þingmaður í stjórnarandstöðu, fór stórum orðum um það hvað þessar krónutöluhækkanir sem við ræðum hér væru ömurlegar, þetta væru flötustu skattarnir sem til eru. Ég ætla að vísa í ræðu sem hæstv. forsætisráðherra flutti hér við fjárlögin 2023 og þetta kom fram í mörgum gagnrýnum hennar á fjárlög almennt. Hún segir, með leyfi forseta:

„Af því leiðir að tekjuhátt fólk sem á miklar eignir finnur minnst fyrir þeim og þau sem hafa lítið á milli handanna hlutfallslega mest.“

Virðulegur forseti. Ég vona að þetta skiljist hér. Núna er þessi ríkisstjórn, undir forsæti hæstv. ráðherra Kristrúnar Frostadóttur, að leggja til að allar krónutöluuppfærslur séu í samræmi við verðbólgu en ekki verðbólgumarkmið þrátt fyrir að hafa gagnrýnt fyrrverandi ríkisstjórnir fyrir þessar krónutöluhækkanir vegna þess að hæstv. ráðherra hafði svo miklar áhyggjur af því að þær bitnuðu mest á þeim sem minnst hafa. Hvað hefur breyst? Ekkert hefur breyst nema viðkomandi er orðinn ráðherra og nú skal ná í hverja krónu. Það má alls ekki rýrna að raungildi en þá skulum við velta fyrir okkur: Er eitthvað annað sem er þá að rýrna að raungildi?

Virðulegur forseti. Í athugasemdum við þennan skattaorm sem hér er og fjárlagafrumvarpið þá benti til að mynda Alþýðusamband Íslands á að gert sé ráð fyrir óbreyttum útreikningsreglum og viðmiðunarfjárhæðum barnabóta sem leiði til þess að fjárhæðin muni ekki halda verðgildi sínu.

Virðulegur forseti. Barnabótakerfið, sem var eitt af því sem Samfylkingin gagnrýndi hvað mest á síðasta kjörtímabili, sem fyrrverandi ríkisstjórn fór í umtalsverðar breytingar á og hækkaði, er ekki að halda verðgildi sínu í þessu fjárlagafrumvarpi en það er mikilvægt að krónutöluhækkanirnar haldi nú örugglega verðgildi sínu.

Ég gæti haldið áfram, virðulegur forseti. Það er hér verið að leggja til að sóknargjöldin verði þau sömu og þau voru á síðasta ári eftir að þáverandi hv. efnahags- og viðskiptanefnd breytti þeim. En er þar verið að gera ráð fyrir verðbólgu? Nei. Þau eiga ekki að halda verðgildi sínu. Skattar skulu halda verðgildi sínu en greiðslur til barnafjölskyldna í landinu eða til sókna skulu ekki halda verðgildi sínu. Þetta er nú það sem hæstv. ríkisstjórn leggur hvað mest til. (Forseti hringir.)

Virðulegur forseti. Ég á enn eftir að ræða eitt af mínum uppáhaldsmálum hér sem er samsköttun hjóna og sambúðarfólks og verð því að óska eftir því að fá að fara aftur á mælendaskrá.