157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[18:10]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hér er á ferðinni ríkisstjórn sem eyðir meiru en hún aflar. Það eru svo sem ekki nýjar fréttir fyrir þá sem hafa fylgst með stjórnmálum síðastliðin ár og áratugi að það er eðli vinstri stjórna að eyða meiru en þær afla. Það er eðli þeirra að sækja eyðsluna að hluta til og jafnvel dreifa henni nokkuð jafnt í meiri skuldsetningu og halla og síðan á skattgreiðendur, á heimilin í landinu, íbúa þessa lands, heimilin og fyrirtækin í landinu. Það er fáheyrð önnur eins útgjaldaaukning og nú er, 143 milljarðar. Það er nefnilega merkilegt, virðulegur forseti, að verkstjórnin, sem hún kallar sig sjálf, verkstjórnin sjálfkallaða, sagðist ætla að ganga til verka, fara í einhvers konar tiltekt en það er ekki hægt að sjá það á óráðsíunni og skattahækkunum og álögunum sem er verið að setja hér á almenning í landinu. Hún var nú samt ekki með meira plan en það og kannski til að dreifa málum þá var auglýst eftir tillögum frá fólkinu í landinu. Almenningur var beðinn um að koma með tillögur um það hvernig mætti hagræða í ríkisrekstrinum. Almenningur brást vel við. Inn komu að mig minnir um 10 þúsund hagræðingartillögur. Hvar eru þær? Hvar eru þessar hagræðingartillögur? Jú, það var skipaður einhver starfshópur til að vinna úr þessu og síðan hefur hæstv. forsætisráðherra lýst því hér yfir oftar en einu sinni úr pontu að það eigi að hagræða í rekstri ríkisins um 100 milljarða á kjörtímabilinu, einungis á kjörtímabilinu. Nú er þetta fyrsta ár liðið og hvergi bólar á hagræðingunum. Þá veltir maður fyrir sér hvort þetta séu þá 33 milljarðar næstu þrjú árin í hagræðingu í ríkisrekstri. Eða, virðulegur forseti, á þetta að vera einhvers konar bókhaldsfiff, að lækka hér varasjóð eða annað til að geta sýnt fram á það að hér hafi verið stundaður einhver sparnaður í rauninni án þess að taka á því að reyna að spara í ríkinu?

Ég sagði hér í fyrri ræðu minni að þetta væri fullkomin uppgjöf fyrir verkefninu af því að það er ekki verið að taka á ríkisrekstrinum. Við erum hér með fjárlög upp á 1.600 milljarða og það bólar bara hvergi á hugmyndum um að reyna að skera fituna af í rekstri ríkisins. Í atkvæðagreiðslu nú á dögunum eftir 2. umræðu um fjárlög, sem tók um sjö klukkustundir og ekki síst út af öllum breytingartillögum Sjálfstæðisflokksins, þá kom Sjálfstæðisflokkurinn heldur betur með tillögur fyrir hæstv. ríkisstjórn um hvernig mætti hagræða í rekstri ríkisins upp á tugi milljarða ásamt eignasölu sem hefði skilað sér í 30–35 milljarða minni vaxtakostnaði fyrir ríkið. Samtals hefði því ríkið getað sparað í útgjöldum og vaxtakostnaði um 100 milljarða, ekki á kjörtímabilinu, virðulegur forseti, heldur á ári, þannig að á heilu kjörtímabili væru þetta um 400 milljarðar. Reyndar komu á móti tillögur líka um að lækka skatta og gjöld á íbúa þessa lands um 33 milljarða. Allt var þetta fellt, þetta var allt fellt. Það er alveg sama hvaða tillögur þetta voru, jafnvel pínulitlar tillögur sem maður hefði talið að þarna hlytu þau að sjá að það væri hægt að hagræða. Tillögur sem voru í raun alveg sjálfsagðar. En nei, það var allt fellt. Það er búið að gefa línuna. Þá fór maður að velta því fyrir sér: Er uppgjöfin algjör? Er það bara einhvern veginn eðli vinstri mannsins að þenja út báknið, steypa ríkissjóði í enn frekari skuldir? Og fyrir hluta af þessu öllu saman á að senda heimilunum og fyrirtækjunum í landinu reikninginn. Það er meira að segja ekki einu sinni verið að horfa, t.d. eins og í krónutöluhækkunum, til þess að það sé þá miðað við verðbólgumarkmið. Nei, það er 3,7% sem er verðbólguhvetjandi. Eins og ég las upp áðan færslu Vilhjálms Birgissonar þar sem hann talar um allar þessar hækkanir sem munu hafa áhrif á leiguverð og hvaða áhrif kílómetragjaldið og vörugjöldin munu hafa og eru það um 20 milljarðar sem verðtryggðar skuldir heimilanna munu hækka um. Það er nú jólagjöfin í ár frá hæstv. ríkisstjórn, tvöföld jólagjöf, skatta- og gjaldahækkanir ásamt því að skuldir heimilanna hækka, vaxtabyrðin hækkar. Þetta er alveg frábær sending, virðulegur forseti, fyrir heimilin í landinu og íbúa þessa lands.

Þegar við tölum um afnám á samsköttun hjóna þá hefur því verið haldið hér fram í ræðustól af hv. þingmönnum stjórnarinnar og hæstv. ráðherrum ef út í það er farið að þetta eigi einungis við ríkasta fólkið í landinu. Það eru um 15 þúsund heimili sem verða fyrir búsifjum, tekjumissi af þessari ráðstöfun. Allt þetta fólk er harðduglegt vinnandi fólk og ungt fólk sem vinnur mikið. Það er að verða fyrir þessum búsifjum. En hér er þetta látið hljóma eins og þetta sé eitthvert ríkasta prósentið eða eitthvað svona og það séu bara þeir allra ríkustu sem njóti góðs af þessu þegar á daginn kemur að þetta eru 15 þúsund heimili vinnandi fólks, harðduglegt vinnandi fólk sem verður fyrir barðinu á þessu. Það er í raun alveg ótrúlegt, alveg sama hvernig á þetta er bent. Það sama á við um kílómetragjaldið, þær umsagnir sem hafa komið þar inn eru allar neikvæðar. Umsagnir varðandi hækkun á vörugjöldum á bifreiðar, allar neikvæðar eða varað við áhrifum sem hríslast út um allt efnahagskerfið. Það er alveg sama hvar niður er borið, allt ber þetta að sama brunni. Þá fer maður að velta því fyrir sér: Hvað gengur eiginlega hæstv. ríkisstjórn til? Hvað gengur hæstv. ríkisstjórn til og hvernig ríkisstjórn er það sem — jú, fólk getur fengið slæma hugmynd, ríkisstjórnir geta fengið slæmar hugmyndir en þegar allir eða eins og sagt er, þegar allir og amma þeirra koma og segja að þetta sé ekki góð hugmynd og hún muni hafa þessi og þessi áhrif, þá berja menn bara höfðinu við steininn.

Það er sorglegt, virðulegi forseti, að horfa upp á það hvernig þessum málum er háttað núna og eins og hér hefur verið bent á og ég hef bent á er þessi svokallaða stöðugleikaregla, sem er í rauninni skattaregla, er löngu fallin. Hún er kolfallin. Þessi fjárlög og þessir skattormar eru hvorki fugl né fiskur. Þeir munu hafa gríðarlega slæm áhrif á stöðu heimilanna og fyrirtækjanna í landinu. Það verður ekki til góðs fyrir okkur Íslendinga núna inn í nýtt ár að burðast með þessar klyfjar líka af því að hæstv. ríkisstjórn hafði ekki þá burði að takast á við það verkefni að reyna að skera niður, skera fituna af. (Forseti hringir.) Nei, þá er þægilegra að hækka bara skatta og þenja allt báknið út.