breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni, hv. afmælisbarni, fyrir prýðisræðu. Hann vék í máli sínu aðeins að því sem verkalýðsleiðtoginn Vilhjálmur Birgisson hefur verið að tjá sig um. Þar er hann, ef ég hef skilið hv. þingmann rétt, að svara í raun ákveðnum áróðri, ef við getum kallað það svo, frá Samfylkingunni á netinu þar sem er fullyrt um fimm vaxtalækkanir á einu ári, minnstu verðbólgu frá 2020 og helmingi minni halla á fjárlögum ríkisins. Það er ótrúlegt að lesa þetta, hv. þingmaður, þegar verið er að auka opinber útgjöld um 143 milljarða, fara í skattahækkanir upp á 28 milljarða og láta ökutækin í landinu taka stóran hluta af því og hin hefðbundnu íslensku fjölskyldugildi einnig og vísa ég þar til afnáms samsköttunar hjóna. Vissulega er sameiginleg skattaleg ábyrgð eftir sem áður skilin eftir. Þetta minnir svolítið á þegar verðtryggingin var afnumin af launum en skilin eftir á lánum. Hér verður til afleiða sem er ekki gott að spá fyrir um hvaða afleiðingar muni hafa að öðru leyti en því að það liggur fyrir að heimilin hafa ekki sama svigrúm þegar aðilar hafa verulega mismunandi tekjur.
Ég vil byrja á spurningu til hv. þingmanns varðandi þær fullyrðingar sem Samfylkingin er þarna að setja fram og ég myndi þá kannski nýta, frú forseti, seinna andsvar mitt í að fara betur yfir það með hvaða hætti Vilhjálmur Birgisson verkalýðsleiðtogi svarar þeim.