157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[18:22]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir. Það sem Vilhjálmur Birgisson var einmitt að ræða í þeirri færslu sem ég vitnaði til eru hver áhrifin eru eins og af vörugjöldunum. Ríkissjóður mun ekki innheimta þessa 7,5 milljarða en það mun samt fara út í verðlagið sem þýðir það, ásamt leigunni og fleiru, að verðbólgan mun hækka um 1% sem þýðir að verðtryggðar skuldir heimilanna munu hækka um 20 milljarða. Þetta er svona auka jólaglaðningur frá ríkisstjórninni til fólksins í landinu. Varðandi það hvernig staðan er þá var rétt í þessu Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, að setja inn færslu á fésbókinni sem ég ætla að fá að lesa, með leyfi forseta, út af kílómetragjöldunum:

„Það er með hreinum ólíkindum hversu forhertir ríkisstjórnarþingmenn eru í þessu máli. Það er búið að leggja fyrir þá gögn bæði frá SAF og fyrirtækjunum sjálfum um það augljósa milljarða tjón sem þetta mál mun valda bílaleigum og ferðaþjónustu. Enginn hefur hrakið þessi gögn. Þeim hefur meira að segja varla verið andmælt að ráði. Ekkert tillit er tekið til þess að aðeins er beðið um fyrirvara á málið, aðlögunartíma til að takmarka tjónið. Þingmenn meiri hlutans kjósa frekar að horfa í hina áttina.“

Þetta er bara enn eitt dæmið, virðulegur forseti, um það hvernig hæstv. ríkisstjórn skellir við skollaeyrum um öll varnaðarorð. Meira að segja þegar Samtök ferðaþjónustunnar eru komin í einhvers konar nauðasamninga um vont mál, einhverja skaðaminnkun, þá er ekkert hlustað. Það er í rauninni ótrúlegt að horfa upp á upplýst fólk, upplýsta hv. þingmenn, einhvern veginn bara ekki hlusta á þá sem hafa meira vit á þeim mörgu málum sem um er að ræða.