157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[18:24]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og tek auðvitað undir með því sem hann kemur hér að varðandi það sem við vorum að afgreiða núna milli 2. og 3. umræðu, kílómetragjöldin, að það er þyngra en tárum taki að þrátt fyrir allar þær fjölmörgu umsagnir frá hinum ýmsu aðilum, mjög vel rökstuddar sem hafa verið raktar hér í þessum ræðustóli, að ríkisstjórnin kjósi og meiri hlutinn að daufheyrast við þessum varnaðarorðum, rétt eins og allir séu búnir að gleyma því sem gerðist þegar innviðagjaldið var tilkynnt á skemmtiferðaskipin.

Mig langar hér í restina, hv. þingmaður, að nefna að Vilhjálmur Birgisson rekur nokkrar stærðir. Hann telur að hér verði að horfa til þess hverjir njóti þessarar lækkunar og hverjir ekki. Fyrir heimili með verðtryggð húsnæðislán hafi engin vaxtalækkun átt sér stað. Vilhjálmur Birgisson segir, með leyfi forseta:

„Í desember 2024 voru grunnvextir verðtryggðra lána 4% og viðbótarvextir 5%. Ári síðar eru vextirnir óbreyttir hjá Landsbankanum, ríkisbanka í eigu almennings. Á sama tíma hefur verðbólga lækkað úr 4,8% í 3,7%. Þetta þýðir að raunvextir verðtryggðra lána hafa hækkað, þrátt fyrir lægri verðbólgu og lægri stýrivexti. Bankarnir hafa hvorki skilað stýrivaxtalækkunum né ávinningi af minni verðbólgu til heimilanna. Á meðan þetta gerist hefur fólk verið þvingað úr óverðtryggðum lánum yfir í verðtryggð lán vegna óbærilegrar vaxtabyrði. Afleiðingin er sú að skuldir heimilanna í verðtryggðum lánum nema nú rúmum 2.000 milljörðum króna.“

Svo tek ég að sjálfsögðu undir með Vilhjálmi Birgissyni varðandi það að þetta er ekki náttúrulögmál. En hvernig, hv. þingmaður, megum við eiga nokkra von til þess að á okkur verði hlustað í þessu máli úr því að það var ekki tekið tillit til yfirgripsmikillar og vandaðrar umfjöllunar um kílómetragjaldið því í fáum málum sem koma hingað inn var málið, ef ég leyfi mér að segja, frú forseti, eins svarthvítt í umsögnum og það mál?