breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Við erum hér með ríkisstjórn sem hlustar ekki á einn eða neinn, hlustar ekki á verkalýðshreyfinguna, hlustar ekki á hin og þessi hagsmunasamtök. Það er alveg sama hvar ber niður. Þetta er líka ríkisstjórn sem skreytir sig eiginlega með stolnum fjöðrum. Fimm vaxtalækkanir út af fjárlögum sem þau gerðu ekki einu sinni sjálf, út af vaxtalækkunarferli sem var í rauninni hafið þegar þau voru ekki tekin við. Ég velti fyrir mér hvort þessi hæstv. ríkisstjórn sem nú situr og er að þenja út ríkisbáknið um 143 milljarða, auka á skuldsetningu, skattheimtu og gjaldheimtu á alla landsmenn muni fá fimm vaxtalækkanir á sínu fyrsta ári og sínum fyrstu fjárlögum. Þau fjárlög sem nú eru í gildi eru ekki fjárlög hæstv. ríkisstjórnar en þau skreyta sig með því að hafa náð fram þessum vaxtalækkunum sem hafa bara ekkert með þau að gera, en ætla að koma núna og skreyta sig með því af því að það er fátt annað sem hægt er að skreyta sig með fyrir hæstv. ríkisstjórn af því að þau hlaupa bara undan þegar það á að fara að ræða hér skatta og gjöld á fólk í landinu.