157. löggjafarþing — 49. fundur,  15. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[18:51]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Virðulegur forseti. Við erum enn þá að ræða svokallaðan bandorm sem hv. þm. Vilhjálmur Árnason kallar réttilega skattaorm því skattatillögurnar sem hér er verið að leggja á borð fyrir þingheim og almenning eru æðimargar, ótrúlega margar í raun miðað við þau kosningaloforð sem voru viðhöfð mjög skýrt hér í aðdraganda kosninga og á nú svona hressilega ekki að standa við þegar ekki er lengra liðið á kjörtímabilið en raun ber vitni. Það vekur ákveðna undrun núna þegar jólasveinarnir eru að koma til byggða að þá þramma þeir hér um sali þingsins, skattastaur, gjaldagaur og fleiri góðir almenningi eflaust ekki til mikillar gleði en við reynum að standa hér og benda á að hér er verið að ganga of langt og of geyst. Hér er verið að svíkja mjög skýr loforð sem eru rétt rúmlega ársgömul þannig að það veldur áhyggjum. Við vitum að það er ekki með svona plástrabyrðum á almenning sem við búum til ákjósanlegt umhverfi, hvorki fyrir ríkissjóð né samfélagið allt í heild, þannig að við höfum í þessari umræðu bæði verið að koma á framfæri okkar gagnrýni á hvað blasir við að verði til mikils skaða, þá kannski sérstaklega fyrir ferðaþjónustuna. Það var sjávarútvegurinn sem fékk að finna fyrir því af hálfu ríkisstjórnarinnar í sumar og núna er komið að ferðaþjónustunni. Síðan er það bara hið venjulega fólk í þessu landi sem fær að finna fyrir því. Við höfum því reynt að koma með tillögur sem við teljum að væru til batnaðar í þessu samhengi. Mig langar að reifa þær tillögur sem 2. minni hluti efnahags- og viðskiptanefndar, sem er sú sem hér stendur og hv. þm. Vilhjálmur Árnason, hefur komið fram með, því auk þess að gagnrýna harðlega áform meiri hlutans um þessar óhóflegu skattahækkanir, þá höfum við lagt fram þessar breytingar. Þær breytingar er að finna í breytingartillögu við 2. umræðu á þskj. 256 fyrir áhugasama. Þar er lagt til að fallið verði frá því að afnema heimild hjóna og sambúðarfólks til samnýtingar á skattþrepum, enda sé það ekkert annað en aðför að fjölskyldum í landinu. Tilgangur breytingartillögunnar er að tryggja að hjón og sambúðarfólk geti áfram samnýtt skattþrep því óumdeilt er að samnýtingin létti undir með fjölskyldum og veiti þeim svigrúm til að takast á við áskoranir hversdagsins. Það er jafnframt lagt til að einstaklingar geti áfram nýtt hluta ónýtts persónuafsláttar til greiðslu fjármagnstekjuskatts og að heimild til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á húsnæðislán verði framlengd um eitt ár fyrir alla að svo stöddu þar til það er vonandi hægt að finna varanlegra fyrirkomulag. Þá er lagt til að stimpilgjöld af kaupum einstaklinga á íbúðarhúsnæði verði afnumin.

Það er ljóst, frú forseti, að kílómetragjald og hækkun vörugjalda af ökutækjum munu leiða til færri nýskráninga ökutækja á næsta ári og frekari verðhækkana á útleigu ökutækja. Það er ljóst að samkeppnishæfni ferðaþjónustunnar mun skaðast mjög ef af þessum áformum ríkisstjórnarinnar verður með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á fjölda ferðamanna og verðmætasköpun hér á landi í ferðaþjónustu og tengdum greinum. Í umsögn Samtaka verslunar og þjónustu kemur fram að það hljóti að teljast einsdæmi að ráðist sé í svo viðamiklar breytingar á skattkerfi með svo þröngan skattstofn svo skömmu fyrir áramót og hér er gert. Það er lágmarkskrafa að stjórnvöld gæti að því að fyrirtæki í landinu búi við fyrirsjáanleika, sérstaklega gagnvart svo viðamiklum breytingum, ella verði neikvæð áhrif breytinganna mun meiri. Skattahækkunin sem boðuð er með hækkun vörugjalda nemur 7,5 milljörðum kr. á ári, eða hátt í 67% hækkun tekna af vörugjöldum milli ára og samsvarar 19% hækkun tekna af skattlagningu ökutækja og eldsneytis, hvorki meira né minna. Ef tekið er tillit til tekjuáhrifa frumvarps til laga um kílómetragjald er heildarskattahækkun á ökutæki og eldsneyti um 11 milljarðar kr. milli ára.

Við vitum að hærri skattar hafa áhrif á verð til hækkunar sem síðan hefur áhrif á eftirspurn eftir þeirri vöru sem um ræðir. Áhrif skattahækkana á verð og eftirspurn sjást nú glögglega í þeirri tölfræði sem liggur fyrir um sölu nýrra bifreiða á síðustu mánuðum, þar sem fólk og fyrirtæki keppast við að tryggja sér eintak á „gamla verðinu“, þ.e. áður en skattahækkanir koma til framkvæmda. Við í 2. minni hluta lýsum áhyggjum af áhrifum þeirra miklu skattahækkana sem boðaðar eru í frumvarpinu á verðbólgu í landinu. Í því sambandi má nefna að vísitala neysluverðs er þannig samsett að verð nýrra bifreiða hefur talsverð áhrif á vísitöluna. Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir að krónutölugjöld, svo sem áfengisgjöld, hækki um 3,7% í samræmi við verðlagsforsendur fjárlagafrumvarpsins þrátt fyrir að verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands sé 2,5%. Að okkar mati mun þessi ákvörðun stuðla að enn meiri verðbólgu. Það er rétt að staldra aðeins við þennan punkt, frú forseti, því ég held að það sé óhætt að fullyrða að síðustu kosningar snerust ekki hvað síst um að kjósendur þessa lands vildu gjarnan sjá fram á einhverja ábyrga afstöðu gagnvart því risaverkefni að ná niður verðbólgu og vöxtum. Það er eitt stærsta hagsmunamál allra heimila á Íslandi. Það er með nokkrum ólíkindum að ríkisstjórnin sem með sínum loforðum um að hækka ekki skatta og loforðum um að ná tökum á verðbólgu og vöxtum skuli í sínu fyrsta fjárlagafrumvarpi koma með frumvarp sem mun að öllum líkindum, svo ekki sé fastar að orði kveðið, valda meiri verðbólgu. Það er eiginlega með ólíkindum að það sé staðan en það er engu að síður staðan.

Varnaðarorð Sjálfstæðismanna hafa þegar borið árangur og það er vel. Meiri hlutinn hefur séð að sér og dregið til baka áform sín um stórfelldar breytingar á erfðafjárskatti sem voru bæði skaðlegar og illa útfærðar. Þeim viðsnúningi ber að fagna. En betur má ef duga skal og vonast sú sem hér stendur til þess að fallist verði á þær breytingartillögur sem lagðar voru fram af hálfu fulltrúa 2. minni hluta í efnahags- og viðskiptanefnd. Það eru kannski ekki alltaf jólin í þeim efnum en það er hægt að leyfa sér að vona.

Mig langar í lokin að fá að nefna örstutt að það er líka mikilvægt að bregðast við þeirri stöðu sem ríkir nú á húsnæðismarkaði með aðgerðum sem auðvelda fólki að eignast íbúðarhúsnæði. Því höfum við lagt áherslu á að stimpilgjald vegna kaupa einstaklinga á íbúðarhúsnæði verði afnumið. Stimpilgjald, sem er hreinn og beinn skattur á fasteignaviðskipti, hækkar viðskiptakostnað, dregur úr framboði og rýrir hlut kaupenda og seljenda.

Frú forseti. Allar þær skattahækkanir sem ríkisstjórnarflokkarnir leggja hér til þýða að seilast á dýpra í vasa skattgreiðenda, þ.e. venjulegs fólks, fjölskyldna og fyrirtækja. Ríkisstjórnarflokkarnir velja að fara leið skattpíningar þar sem þeir geta ekki komið sér saman um hagræðingaraðgerðir þrátt fyrir mikinn blaðamannafund þess efnis í byrjun árs og treysta sér að öllum líkindum ekki heldur til að draga úr útgjaldavexti ríkisins því útgjaldavöxtur ríkisins á milli ára er ótrúlegt en satt heilir 143 milljarðar sem er með ólíkindum mikið og það er með ólíkindum að það eigi að leyfa sér að senda reikninginn fyrir þessum útgjaldaauka, ekki öllum en hluta af honum, til venjulegs fólks í þessu landi með auknum sköttum. Ég tala nú ekki um þegar allt bendir til þess að það muni auka verðbólgu í þessu landi þegar við megum síst við því.