breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin og er hjartanlega sammála henni hvað þetta varðar. Mig langar að spinna þennan þráð aðeins áfram. Þetta er fyrsta fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og það hafa verið ansi margar afsakanir, t.d. á síðasta þingvetri þar sem var í raun verið að kvarta undan því að menn hefðu verið að taka við mjög slöku búi, og ég ætla að leyfa mér að segja, afsökuðu kannski ákveðið metnaðarleysi með því að ætla að nota þá áætlun sem lá fyrir hjá fyrri ríkisstjórn. Ef við munum rétt þá var gert sérstakt hlé á samningaviðræðum ríkisstjórnarinnar til þess að taka stöðuna vegna þess að það hafði komið í ljós að rekstur ríkisins var mun lakari en þau höfðu talið eða réttara sagt, það mátti skilja á þeim eins og hefði verið gefið upp, sem mér fannst nú reyndar ótrúlegt því það lá alveg fyrir hvernig stefna þeirrar ríkisstjórnar væri. Þó að það megi margt neikvætt segja um þá ríkisstjórn þá var engu að síður gert ráð fyrir því að hægja verulega á útgjaldaaukningunni og nýta aukinn kraft í atvinnulífinu til að greiða upp skuldir eða minnka halla.
Ég ætla að athuga með hv. þingmann því nú er þetta fyrsta fjárlagafrumvarp þessarar ríkisstjórnar og maður skilur það alveg með Samfylkinguna að hún skuli leggja svona mikla áherslu á skattana en ég verð að lýsa því yfir og fá álit hv. þingmanns á því: Hvað er að gerast með Viðreisn? Hvernig stendur á því að Viðreisn er nákvæmlega á þessum stað að það má hreinlega segja að þau séu komin ótrúlega langt til vinstri? Hér voru t.d. kynntar sparnaðartillögur, maður sér enga af þeim í þessu fjárlagafrumvarpi, bara ekki nokkra.