breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Það hvarflaði að mér að bílstjórinn í þessari þjóðarrútu sem ríkisstjórnin er sé formaður Flokks fólksins sem birti af sér myndskeið á Facebook og samfélagsmiðlum þar sem hún sat í, ekki reyndar bílstjórasætinu heldur í farþegasætinu af því hún er með bílstjóra og keyrir svo sem ekki sjálf, en hún sat í farþegasætinu og gaf út skipanir til ríkisstjórnarflokkanna, til samflokka sinna, um útgjaldafrumvarp, eitt tiltekið útgjaldafrumvarp sem Flokkur fólksins hefur haft á heilanum, eitt af mörgum. Það eru öðrum þræði kannski bara þessi útgjaldafrumvörp sem eru að renna hérna í gegn sem valda því auðvitað að ríkisstjórnin og hæstv. fjármálaráðherra hefur ekkert svigrúm til þess t.d. að taka tillit til þeirra breytingartillagna sem liggja fyrir í þessum bandormi eða öðrum útgjaldamálum hér. Hann hefur ekki svigrúm vegna þess að boginn er spenntur svo hátt í fjárlagafrumvarpinu þegar kemur að útgjöldum að það er ekkert svigrúm til að bregðast við jafnvel alvarlegustu ábendingum og ábendingum um galla á einstökum málum sem koma hér fram og ekki einu sinni ábendingum og hóflegum óskum um að fresta sumum útgjaldamálum. Nei, það er ekki viðlit og Viðreisn og Samfylkingin láta þetta yfir sig ganga til þess, ég veit það ekki, að límið í þessari ríkisstjórn haldi, sem er augljóslega Flokkur fólksins sem leggur ekkert til hér nema útgjöld á útgjöld ofan.