Frestun á skriflegum svörum.
Borist hefur bréf frá atvinnuvegaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 380, um kostnað við starfslokasamninga, frá Karli Gauta Hjaltasyni. Einnig hefur borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 410, um greiðsluþátttöku sjúklinga, frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Þá hafa borist bréf frá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 381, um kostnað við starfslokasamninga, og þskj. 562, um fjármuni til loftslagsmála, báðar frá Karli Gauta Hjaltasyni, og á þskj. 348, um sérstaka ívilnun námsgreina, frá Sæunni Gísladóttur.