Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það er gott að koma hér upp undir þessum lið og í fyrsta lagi bregðast við orðum hv. þm. Gríms Grímssonar um fæðingarorlofið. Það er jákvætt að heyra það frá Viðreisn að þessum hugmyndum sé sýndur ákveðinn skilningur, þótt ég hiki við að segja að það sé afdráttarlaus stuðningur við hugmyndina. En það væru tíðindi ef Flokkur fólksins og Viðreisn styddu það að foreldrar hefðu frelsi til að ráðstafa fæðingarorlofi sjálfir og það væri bara Samfylkingin sem ekki gerði það. Það væri gott að fá það skýrt fram frá Viðreisn, þótt mér heyrist að menn séu hikandi. Ég tek það reyndar fram að þegar menn eru að tala um árangur tel ég það einfaldlega ekki árangur í neinum skilningi að það sé verið að stórskaða hagsmuni barnafjölskyldna með forræðishyggju af hálfu ríkisvaldsins. Ég skil ekki hvaða árangur felst í því.
Hérna í dag ætla ég hins vegar líka að nefna það, vegna þess að hæstv. forsætisráðherra gaf í skyn í Silfrinu í gær að með einhverjum hætti hefði það staðið á stjórnarandstöðu að ríkisstjórnin kæmi hér í gegn litlu málunum sínum í útlendingamálum, að það er fjarri sanni. Hér var verið að endurflytja mál í september í tengslum við afturköllun allsherjarverndar sem hefur notið fulls stuðnings okkar og allra í stjórnarandstöðunni, ef ég skil það rétt, sem mönnum hefði verið í lófa lagið að samþykkja mun fyrir. Það hefur aldrei staðið á okkur og í raun og veru mjög vafasamt að fara fram með þeim hætti að gefa slíkt í skyn. Nú hef ég skilað inn nefndaráliti í málinu. Það er búið að vinna þetta ágætlega. Vafalaust þyrfti að huga að ýmsum þáttum áður en þetta yrði afgreitt en þetta hefur ekki á neinum tímapunkti mætt andspyrnu af okkar hálfu. Þetta er hins vegar spurning um forgangsröðun ríkisstjórnarinnar. Núna er verið að tala um hlutdeildarlánin, útreikninga þar. Mér heyrist að ríkisstjórninni sé mun meira í mun að fara að kenna Seðlabankanum að reikna en að taka stjórn á útlendingamálum en það er þá vegna þess að það er þeirra ákvörðun en ekki okkar í stjórnarandstöðunni.