Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í gær samþykkti Alþingi lög um sérstaka eingreiðslu til öryrkja og eldri borgara. Þetta eru greiðslur sem Flokkur fólksins hefur barist fyrir á hverju ári frá því að svipaðar greiðslur voru greiddar árið 2020 til öryrkja og þeirra sem áttu rétt á endurhæfingarlífeyri. Að þessu sinni ná greiðslurnar eins og áður til þeirra efnaminnstu í hópi öryrkja og þeirra sem fá greiddan endurhæfingarlífeyri en ná nú einnig til stærri hluta eldri borgara en fyrir jólin 2024. Greiðslurnar eru tekjutengdar þannig að þeir sem hafa engar eða mjög litlar tekjur annars staðar frá en almannatryggingum fá mestu greiðslurnar. Þessar greiðslur bætast við hefðbundna desemberuppbót til þeirra sem fá greitt frá almannatryggingum vegna örorku eða eftirlaunaaldurs. Með þessari eingreiðslu sendum við þau skýru skilaboð um að samfélaginu beri að standa með þeim sem búa við lökustu kjörin.
Eldri borgarar og öryrkjar eru ekkert frábrugðnir öðrum hópum sem vilja gleðja sína nánustu og gera betur við sig um jól en aðra daga ársins. Jólamánuðurinn getur hins vegar reynst mörgu efnaminna fólki erfiður. Þess vegna skiptir máli að þessar greiðslur séu skattfrjálsar og skerði ekki aðrar greiðslur almannatrygginga. Á Íslandi býr ein ríkasta þjóð í heimi og með þessum eingreiðslum fyrir hátíðarnar stuðlum við að því að sem flestir geti leyft sér að gera sér dagamun. Þetta er spurning um réttlæti og virðingu. Jólin minna okkur á samstöðu, mannúð og ábyrgð gagnvart hverju öðru. Mörg undanfarin ár hefur svipuð viðbótargreiðsla verið samþykkt á Alþingi rétt fyrir jól. Ríkisstjórnin stefnir hins vegar að því að þessi greiðsla verði færð í fastari skorður og verði hér eftir fastur liður við afgreiðslu fjárlaga fyrir jól.