157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

Störf þingsins.

[10:47]
Horfa

Eydís Ásbjörnsdóttir (Sf):

Frú forseti. Í síðustu viku fór fram úthlutunarhátíð Uppbyggingarsjóðs Austurlands fyrir árið 2026 í Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði. Þar flutti hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Logi Einarsson, ávarp og undirstrikaði mikilvægt hlutverk menningar og nýsköpunar í eflingu byggða og lífsgæða um allt land. Hann lagði áherslu á að menning væri lykilþáttur í búsetuvali og ætti ekki að vera forréttindi fárra heldur sjálfsagður hlutur af daglegu lífi óháð búsetu. Jafnframt benti ráðherra á uppbyggingarsjóði sem lykiltæki til að styðja við innviði og hugmyndir á landsbyggðinni. Ég tek heils hugar undir þau orð. Alls hlutu 57 verkefni styrk og nam heildarúthlutun rúmum 59 millj. kr. Styrkirnir fóru til atvinnu- og nýsköpunarverkefna og fjölbreyttra menningarverkefna auk stofn- og rekstrarstyrkja.

Í heimsókn sinni austur undirritaði ráðherrann einnig nýja samninga milli ráðuneytisins og Samtaka sveitarfélaga á Austurlandi um stuðning við menningarstarfsemi. Með samningunum tryggja ríki, Múlaþing og Fjarðabyggð betri samningsgrundvöll og aukið fjármagn til menningarmiðstöðva. Samningarnir gilda frá 1. janúar nk. til ársloka 2029. Markmiðið er að efla lista- og menningarlíf á Austurlandi og það var sannarlega ánægjulegt að finna gleðina og þakklætið á staðnum. Sérstaklega er ánægjulegt að Sköpunarmiðstöðin á Stöðvarfirði sé nú fest í sessi sem fjórða menningarmiðstöðin á Austurlandi. Samningurinn nær til fjögurra menningarmiðstöðva með skýrt hlutverk. Það eru: Skaftfell á Seyðisfirði, myndlist, Sköpunarmiðstöðin, skapandi greinar, Menningarstofa Fjarðabyggðar, tónlistaruppbygging, og Menningarmiðstöð Múlaþings, sviðslistir.

Ég óska styrkhöfum og sveitarfélögunum til hamingju með þennan mikilvæga áfanga.