Störf þingsins.
Virðulegur forseti. „Það þarf alltaf hörmungar til að við vöknum en við vökum ekkert lengi“, sagði Ómar Már Jónsson, fyrrverandi sveitarstjóri í Súðavík, í viðtali við Morgunblaðið í gær í tilefni af nýrri skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um snjóflóðið í Súðavík. Þetta er málefni sem stendur mér nærri sem Flateyringur og Vestfirðingur. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd mun taka við þessari skýrslu núna og það skiptir máli að vanda vel til verka þar. En þessi orð Ómars sátu í mér. Við erum góð í viðbragði en við gætum gert betur þegar kemur að því að fylgja málum eftir. Við erum áfallasamfélag, við kunnum að keyra í gegnum skafla, en hvað svo? Við verðum að vera betri í að hlúa að fólki eftir að áfall á sér stað því samfélagið situr eftir með margar spurningar og opið sár. Við þekkjum þessa sögu og að mínu mati ættum við að setja allan fókus á að tryggja að hún gerist ekki aftur. Við vitum að áföllin munu koma og það skiptir máli hvernig við vinnum úr þeim.
Forseti. Ég ólst upp sem barn í áfallasamfélagi á Flateyri, allt of nálægt dauðanum án þess að skilja hann. Við eigum líka nærtæk dæmi um áföll. Ég get nefnt Grindavík, Seyðisfjörð, Neskaupstað og víðar þar sem börn hafa setið eftir og fólkið í samfélögunum með margar spurningar og við verðum að geta tekið samtalið um hvað svo. Ekki skilja fólkið eftir eitt með spurningarnar og þessa tilfinningu um að vera skilið eftir. Tryggjum nú að við vöknum almennilega og vökum nógu lengi til að tryggja öryggi fólksins okkar og eftirfylgni eftir áföll. Þar er verk að vinna. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)