157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

Störf þingsins.

[10:53]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Í gær samþykktum við lög frá Alþingi um eingreiðslur, sem sumir kalla jólabónus, fyrir öryrkja og eldri borgara. Þetta er mikið fagnaðarefni enda rennur þessi greiðsla til þeirra sem minnst hafa á milli handanna. Það var því sorglegt að hlusta á þingmenn stjórnarandstöðunnar koma upp í ræðu og gera lítið úr þessari eingreiðslu. Flestir viðurkenndu þó að hugurinn á bak við hana væri góður en fundu henni svo í næsta orði allt til foráttu, m.a. var reynt að gera lítið úr þessari aðgerð vegna þess að hún væri gömul Covid-aðgerð. Það lá í orðunum að þessi greiðsla hefði því átt að vera afnumin með öllu þegar faraldurinn fjaraði út. Að sjá ofsjónum yfir því að öryrkjar og eldri borgarar fái 74.000 kr. aukalega í vasann dagana fyrir hátíðarnar er hugarfar sem mig langar ekki til að skilja. Einnig var fullyrt að einhverjir sem væru með góðar tekjur og miklar eignir myndu njóta góðs af þessari eingreiðslu. Þannig var algerlega horft fram hjá því að eingreiðsla þessi er tekjutengd og ætluð þeim sem eru alfarið upp á greiðslur Tryggingastofnunar komin. Með þessum lögum, sem samþykkt voru í gær, er búið að festa eingreiðslu í desember í sessi bæði fyrir öryrkja og þá eldri borgara sem minnst hafa á milli handanna.

Það er mér minnisstætt þegar þingmenn Flokks fólksins lögðu fram breytingartillögu við frumvarp þáverandi ríkisstjórnar fyrir jólin 2023 um það réttlætismál að eingreiðsla, sem þá var einungis ætluð öryrkjum, næði einnig til eldri borgara. Atkvæðagreiðslan þá opinberaði hug þáverandi ráðamanna þjóðarinnar til þeirra sem hvað höllustum fæti standa í samfélaginu. Það er skemmst frá því að segja að allir þingmenn bæði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sögðu nei, á meðan allir þingmenn núverandi stjórnarflokka sögðu já. Miðflokksmenn voru þá ekki á svæðinu frekar en venjulega á síðasta kjörtímabili, en hugur margra þeirra kom skýrt fram í ræðum þeirra sem tóku til máls í gær. Til að gæta allrar sanngirni þá fengu eldri borgarar svipaða eingreiðslu í fyrsta skipti fyrir síðustu jól, enda var þá stutt til kosninga og nauðsynlegt að sveipa sig sauðargærunni fyrir þær. Já, það skiptir svo sannarlega máli hverjir eru við stjórnvölinn. Fólkið fyrst, svo allt hitt.