Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Nú þegar jólin nálgast hugsa margir fullorðnir til æskuáranna og þeirrar notalegu tilfinningar sem við flest upplifðum, að hlakka til jólanna. En nú, eins og þá, hlakkar ákveðinn hópur barna hins vegar ekki til jólanna heldur kvíðir þeim. Það er sárt til þess að hugsa því að jólin eru fyrst og fremst hátíð barnanna.
Aðstæður barna og fjölskyldna þeirra eru auðvitað á öllum tímum misjafnar. Ýmis vandamál eins og veikindi og síðan sorg geta varpað skugga á jólahaldið. Hér vil ég hins vegar sérstaklega tala um börn sem kvíða jólunum vegna foreldris eða foreldra sem hafa litla eða enga stjórn á áfengisneyslu sinni. Um jól drekka þeir foreldrar sem hafa misst tök á drykkju sinni jafnvel meira. Ýmis tilefni og uppákomur tengdar áfengi eru tíðari dagana fyrir jól og um jól. Sjúkdómurinn alkóhólismi í sinni verstu mynd spyr ekki hvaða dagur er eða hvort það eru jól eða páskar. Ástand foreldris sem á við drykkjuvanda að stríða og þær aðstæður sem drykkjan skapar getur yfirskyggt allt jólahald fjölskyldunnar og valdið börnum ómældum kvíða og sorg. Börnin sem kvíða nú jólunum vegna drykkjuvandamáls foreldris eru farin að velta fyrir sér hvernig ástandið verði heima um þessi jól og áramót. Sum þeirra hafa lifað mörg jól þar sem drykkja foreldris hefur sett svartan blett á hátíðina og nú óttast þau að ástandið endurtaki sig um þessi jól. Þau biðja og vona innra með sér að allt verði í lagi enda þótt reynslan hafi e.t.v. kennt þeim að varast beri að hafa miklar væntingar þegar áfengi er annars vegar. Besta jólagjöfin sem alkóhólisti getur gefið börnum sínum er að leita sér aðstoðar til að hætta drykkjunni og á Íslandi erum við svo lánsöm að allir sem leita sér hjálpar á þessum sviðum geta fengið hjálp. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)