157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

Störf þingsins.

[11:00]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Í óundirbúnum fyrirspurnum í gær afhjúpaði hæstv. forsætisráðherra bæði vanþekkingu sína og áhugaleysi á fíknivanda barna og ungmenna sem er orðinn faraldur. Eitthvað fannst hæstv. forsætisráðherra að sér vegið og sagði fíknivanda barna og ungmenna þess eðlis að ekki væri hægt að flýta sér hvað málaflokkinn varðaði. Hér reis fyrsta rauða flaggið af nokkrum. Hæstv. forsætisráðherra gaf líka í skyn að undirritaður talaði ekki af yfirvegun og virðingu um málaflokkinn. Dæmi hver fyrir sig. Í kjölfarið hef ég fengið fjölda skilaboða frá foreldrum, öll samhljóða, með leyfi forseta: Takk fyrir að þora, einn fárra sem lætur sig börnin okkar varða.

Ég fékk leyfi til að vitna í ummæli tveggja, með leyfi forseta:Ég hef verið með hann í fanginu í öndunarstoppi þrisvar sinnum. Hann hefur fengið hjartastopp og lögreglan hnoðað hann til baka en ég hef leitað að hinum í fimm sólarhringa með Gumma löggu. Ég hef treyst á að kerfið hér heima grípi hann en ekkert hefur gerst og allt hefur versnað á meðan. Ég vil ekki jarða drenginn minn. Takk, elsku þú, fyrir að sýna okkur að börnin okkar skipti máli.

Það eru til lausnir. Nú er til sölu Laugagerðisskóli á Snæfellsnesi á 85.000 kr. fermetrinn, sem er mjög ódýrt. Þar er allt til alls, fyrirtaksstaður fyrir fjölþætt meðferðarúrræði. Hugsum í lausnum en ekki í excel.

Ég ætla að vitna í orð Guðmundar Fylkissonar, sem hefur verið ódrepandi að fara hér um borgina og nágrannasveitarfélög að leita að börnum. Það er vegna þess að hans persóna er þar. Það er ekki vegna þess að það sé eitthvert skipunarbréf heldur tók hann þetta upp hjá sjálfum sér og er það til eftirbreytni. Ég ætla að vitna í orð þessa merka manns, með leyfi forseta: Opnið augun. — Og ég bæti því sjálfur hér við: Við megum ekki við því að missa (Forseti hringir.) fleiri börn og ungmenni. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )

Það skiptir ofboðslega miklu máli að við sýnum þessum málaflokki virðingu, (Forseti hringir.) að við þorum að tala um hlutina eins og þeir eru og horfumst í augu við málaflokkinn. Við getum ekki boðið … (Forseti hringir.) — Frú forseti. Ég bæði heyri og sé að þú hefur fundið sleggjuna hennar Kristrúnar. (Gripið fram í.)

Ég vil hvetja þingmenn hér í lokin til að mæta niður á Tjörn kl. 18:00 og minnast þeirra barna sem ekki eru með okkur í dag. Það verður minningarathöfn þar á eftir kl. 18:00. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)

(Forseti (ÞSv): )Forseti vill taka skýrt fram að þingsköp eru lög í landinu og gilda um alla þingmenn, alveg óháð efni ræðunnar. Ræðutími í störfum þingsins er tvær mínútur, ekki tvær mínútur og 45 sekúndur. Það sama gildir fyrir alla.