Störf þingsins.
Frú forseti. Ég fagna því að það er stöðug og mikil umræða um stöðu barna, fíknisjúkdóminn og það áratugavanmat sem hefur verið hjá stjórnmálamönnum allra flokka í þessum tiltekna málaflokki. En stundum er talað eins og ekkert sé verið að gera. Mig langar aðeins að fara hér yfir nokkur atriði sem eru í fullum gangi á vegum ríkisstjórnarinnar.
Það er verið að gjörbreyta og stækka Stuðla. Það er verið að fullfjármagna það, það er í næstu fjárlögum, og tími neyðarvistunar verður lengdur úr sjö dögum í 14 daga. Gunnarsholt verður opnað fljótlega með rýmum í langtímameðferð fyrir drengi. Það hefur vantað sárlega þannig að þetta er mjög stórt og verðmætt skref. Það er búið að ákveða að byggja nýtt meðferðarheimili á höfuðborgarsvæðinu. Það eru allar líkur á því að það verði í Garðabænum og er búið að tryggja fjármagn í það. Það er búið að taka þá ákvörðun að meðferðarrýmum verður ekki lokað á sumrin, eins og stundum hefur gerst á undanförnum árum. Það styttir biðlista. Það er séð til þess að meðferðarstofnanir geti rekið sig og þær eru ekki bundnar aðhaldskröfu. Oft hefur skort á það í gegnum tíðina.
Ríkið tók frá sveitarfélögum þann málaflokk sem snýr að börnum með fjölþættan vanda til þess að auðveldara verði að fjármagna þá þjónustu. Það er verið að móta stefnu í áfengis- og vímuvarnamálum. Þetta er vinna sem hófst í tíð síðustu ríkisstjórnar. Willum Þór Þórsson setti hana af stað, m.a. eftir þverpólitíska áskorun hér á þingi og víðar úr samfélaginu. Það er vinna í gangi við að fara yfir meðferðarþjónustu og samræma meðferðarstöðvarnar til að ná betri yfirsýn og stjórnun til að hægt sé að stýra fólki í viðeigandi úrræði, en á þetta hefur skort og eftir þessu hefur verið kallað af hálfu þeirra sem veita meðferð við fíknisjúkdómnum, bæði þegar kemur að börnum og fullorðnum. Það er búið að veita meira fjármagn vegna ópíóíðafíknar, það er þverpólitísk samstaða um það. Við erum miklu meira sammála í þessum málaflokki heldur en ósammála. (Forseti hringir.) Það er áratugavanmat á afleiðingum fíknisjúkdómsins, bæði þegar kemur að börnum og fullorðnum. Við erum sammála um að gera betur. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)