Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Mig langar til að nota þessa stund til að aðeins að ræða samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og sjálfkeyrandi bíla. Nú vitum við að samgöngusáttmálinn nær til ársins 2040 og er uppfærður og endurskoðaður með reglulegu millibili. Stjórnarfyrirkomulagi hans hefur verið breytt og nú eru fulltrúar sveitarfélaganna komnir þar inn, sem gefur betri tengingu við kjörna fulltrúa og inn í sveitarfélögin. Tæknibreytingar eru gríðarlega hraðar. Sjálfkeyrandi bílar hafa verið okkur dálítið fjarlæg hugmynd hingað til. Í umræðunni um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu og annars staðar finnst okkur þetta vera mjög fjarlæg hugmynd. En hvað á eftir að gerast núna innan 15 ára á því tímabili sem samgöngusáttmálinn nær til?
Ég átti þess kost nýlega í Bandaríkjunum, í heimsókn til Austin í Texas, að vera í sjálfkeyrandi leigubíl. Maður þarf stundum að upplifa og reyna hlutina sjálfur til að tengja við hvað er í gangi. Í Austin hafa einmitt sjálfkeyrandi leigubílar verið mikið notaðir í tilraunaskyni og eru mjög hagkvæm leið til að ferðast. Núna er fyrirtækið Tesla komið með eina útfærslu og er að þróa ákveðna tækni, Robotaxi. Mér er sagt þar af þeim sem hafa reynt að nokkurra kílómetra leið kosti tvo og hálfan dollara í slíkum bíl. Það er ódýrara í því tilviki en að ferðast um í strætisvagni. Það er ekki spurning um hvort heldur hvenær. Það er talið að (Forseti hringir.) innan tveggja ára verði þessir bílar komnir um öll Bandaríkin og þeir munu koma hingað. Því hvet ég okkur öll til (Forseti hringir.) að taka tillit til þess í endurskoðun samgöngusáttmálans og þrengja ekki um of í gatnakerfinu (Forseti hringir.) og taka tillit til áhrifa þessa á almenningssamgöngur almennt.
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir enn og aftur á ræðutímann.)