157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[17:36]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Dagur B. Eggertsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir áliti meiri hluta fjárlaganefndar vegna frumvarps til fjáraukalaga. Þetta er fjórða fjáraukalagafrumvarp ársins. Fyrstu fjáraukalög fólu í sér breytingu á 5. gr. fjárlaga vegna uppgjörs ÍL-sjóðs. Önnur fjáraukalögin fólu í sér flutning fjárheimilda vegna breytts skipulags Stjórnarráðsins í kjölfar ríkisstjórnarskipta og þau þriðju í sér breytingar sem endurspegluðu forgangsmál nýrrar ríkisstjórnar. Samtals nam nettóútgjaldaaukning 1,2 milljörðum kr. vegna frumvarpanna eða aðeins um 0,1% af fjárheimildum. Vegna þessa fjórða fjárauka fékk nefndin gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti sem komu og kynntu frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Ekki var talin þörf á að kalla eftir umsögnum um málið frekar en oftast áður um hefðbundin frumvörp til fjáraukalaga.

Í frumvarpinu er lagt til að auka fjárheimildir um 97,7 milljarða kr. eða sem nemur 6,3% hækkun frá fjárlögum ársins. Það er eins og gefur að skilja hærri upphæð og raunar miklu hærri heldur en algengt hefur verið á síðastliðnum árum. Á þessu eru tvær meginskýringar: Annars vegar er 43,6 milljarða kr. hækkun lífeyrisskuldbindinga ríkisstarfsmanna. Þar af eru 36 milljarðar vegna B-deildar LSR og 7,6 milljarðar vegna A-deildar sjóðsins. Mestan hluta hækkunarinnar, eða 35,9 milljarða, má rekja til hækkunar launa opinberra starfsmanna þar sem vísitala skuldbindinga hækkar um 9,3% á árinu. Framlag vegna A-deildarinnar er til komið vegna fjármögnunar lífeyrisaukasjóðs sem var stofnaður í tengslum við samkomulag frá árinu 2016. Hins vegar hækka vaxtagjöld um 23,9 milljarða kr. vegna aukinnar skuldsetningar í A1-hluta ríkisreiknings. Uppgjör ÍL-sjóðs hækkaði skuldir þessa hluta samstæðureiknings ríkisins um 300 milljarða kr. en heildarskuldir samstæðu ríkissjóðs, A-hluta í heild, lækka hins vegar vegna uppgjörsins um nærri 6% af vergri landsframleiðslu. Hækkun vaxtagjalda í fjárauka skýrist annars vegar af áðurnefndu uppgjöri ÍL-sjóðs og hins vegar af erlendri lántöku á árinu sem áður var áætluð árið 2026.

Aðrar gjaldaheimildir nema samtals rúmum 30 milljörðum af fjölmörgum ástæðum. Mest vega 4,8 milljarðar vegna fjölgunar endurhæfingarlífeyrisþega, 3 milljarðar vegna endurgreiðslu fyrir kvikmyndagerð, 2 milljarðar vegna desembereingreiðslu til lífeyrisþega, 1,7 milljarðar vegna skuldbindinga Fæðingarorlofssjóðs og sama fjárhæð vegna samkomulags um úrræði vegna barna með fjölþættan vanda. Um önnur útgjaldatilefni vísast til greinargerðar frumvarpsins. Á bls. 48 í greinargerðinni er birt tafla þar sem helstu útgjaldamál eru sundurliðuð eftir tilefnum og þau sett í samhengi við heildarfjárheimildir fjárlaga og fyrri fjáraukalaga ársins 2025.

Endurmetnar afkomuhorfur gera ráð fyrir að halli á rekstri ríkissjóðs 2025 verði 38 milljarðar kr. eða 0,8% af vergri landsframleiðslu á yfirstandandi ári í stað 63 milljarða kr. halla eða 1,3% af vergri landsframleiðslu samkvæmt því sem áætlað var í fjárlögum ársins.

Frumjöfnuður batnar um 32,2 milljarða kr. frá fjárlögum og munar öllu um auknar tekjur ríkissjóðs eða sem nemur 56 milljörðum kr. á meðan gjöldin hækka um 24 milljarða kr. Á móti vegur að vaxtajöfnuður er lakari sem nemur 8 milljörðum.

Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að heildartekjur ársins eru áætlaðar 1.493 milljarðar sem er 73 milljörðum hærra en áætlun fjárlaga ársins. Hækkunina má rekja til meiri efnahagsumsvifa en ætlað var auk hærri tekjugrunns fyrra árs. Við framlagningu fjárlagafrumvarps 2026 var áætlað að tekjurnar yrðu enn hærri, eða 1.500 milljarðar kr., en nú hefur sú spá verið endurmetin og lækkuð um 7 milljarða.

Heildarútgjöld ársins 2025 eru áætluð 1.531 milljarður kr. á þjóðhagsgrunni eða 48 milljörðum hærri en áætlun fjárlaga. Um helming hækkunarinnar má rekja til gjaldfærslu vaxtagjalda eða 24 milljarða. Sú hækkun skýrist annars vegar af aukinni verðbólgu sem leiðir t.d. til 7 milljarða hækkunar á verðtryggðum lánum ríkisins og hins vegar af uppgjöri ÍL-sjóðs og erlendri lántöku sem upphaflega var áætlað að yrði á næsta ári.

Frávik gjalda frá fjárlögum vegna annarra tilefna eru mest vegna 8 milljarða einskiptisframlags til lífeyrisaukasjóðs A-deildar LSR og 5 milljarða aukinna útgjalda vegna endurhæfingarlífeyris. Fjöldi notenda hefur stóraukist auk þess sem meðallengd greiðslutímabils endurhæfingar hefur lengst. Í frumvarpinu er einnig óskað eftir fjárheimildum vegna nýrra ákvarðana, svo sem 1,5 milljörðum vegna viðhalds vega og 1 milljarði vegna stuðnings við Úkraínu vegna áframhaldandi stríðsátaka.

Til að gefa yfirlit yfir ráðstöfun úr almennum varasjóði þá byggist hann á 24. gr. laga um opinber fjármál. Þar kemur fram að hann skuli að lágmarki vera 1% af heildarfjárheimildum málefnasviða. Skilyrði fyrir úthlutun úr sjóðnum eru þau sömu og gilda um fjáraukalög, þ.e. að útgjöld skuli vera tímabundin, ófyrirsjáanleg og óhjákvæmileg.

Varasjóðnum er einkum ætlað að mæta hækkunum launa og verðlags umfram forsendur fjárlaga hverju sinni, auk meiri háttar ófyrirséðra útgjalda, svo sem vegna náttúruhamfara. Ekki er ætlunin að nýta varasjóð til að mæta rekstrarvanda einstakra ríkisaðila.

Nefndin kallaði eftir upplýsingum um notkunina allt frá samþykkt laga um opinber fjármál og hefur flokkað ráðstöfunina eftir tilefnum. Þá kemur í ljós að öll árin er ráðstafað af varasjóði vegna launa-, verðlags- og gengisbreytinga eins og gert var ráð fyrir frá upphafi. Athygli vekur að langflest árin eru líka ráðstafanir vegna náttúruhamfara. Þó er um mjög misháar fjárhæðir að ræða í því efni. Einnig er ráðstafað vegna dómkrafna í sex tilvikum á þessum níu árum og bendir það til þess að endurmeta mætti fjárlagaheimildir dómkrafna.

Meiri hluti fjárlaganefndar gerir nokkrar breytingartillögur við frumvarpið. Gerð er tillaga um að fella niður 3 milljarða heimild sem er í frumvarpinu vegna endurgreiðslu kvikmyndagerðar. Nefndin var upplýst um að tillaga í frumvarpinu þess efnis að veita 3 milljarða til endurgreiðslna vegna kvikmyndagerðar hafi ekki byggst á réttum forsendum og því gerist ekki þörf á heimildinni á yfirstandandi ári. Uppfærðar áætlanir gera nú ráð fyrir að útgjöldin verði í samræmi við heimildir fjárlaga.

Gerð er tillaga um 31,2 millj. kr. framlag til fjármögnunar íslensku kosningarannsóknarinnar vegna alþingiskosninga sem voru í árslok 2024. Vegna skyndilegrar boðunar alþingiskosninga í nóvember 2024 tókst ekki að tryggja fjármögnun áður en gagnaöflun þurfti að hefjast.

Það er gerð tillaga um 10 millj. kr. framlag vegna leiðréttingar á flutningi stjórnarmálefna við uppskiptingu ráðuneyta fyrr á árinu. Um er að ræða verkefni fjarskiptasjóðs sem var lagður niður um síðustu áramót en fjárheimildin er hugsuð til þess að ljúka yfirstandandi verkefnum á þessu ári. Ekki er gert ráð fyrir fjárheimildum á næsta ári.

Þá er gerð tillaga um 282 millj. kr. framlag til viðbótar þeim 847,5 milljónum sem fyrir eru í frumvarpinu til framhaldsskóla. Nemendum í framhaldsskólakerfinu fjölgar talsvert og þá sérstaklega starfsbrautarnemum. Fjölgun á starfsbrautum hefur að mestu verið í flokki 10 sem er dýrasti flokkurinn þar sem nemendur þurfa umtalsverða aðstoð. Einnig hefur orðið mikil fjölgun í verk- og iðnnámi sem er dýrasti flokkurinn í reiknilíkaninu fyrir utan starfsbrautir. Með þessari tillögu er fullfjármögnuð sú nemendaaukning sem raungerst hefur síðastliðið haust.

Þá er gerð tillaga um 290 millj. kr. framlag í framhaldi af ábendingum meiri hlutans sem fram komu í nefndaráliti fyrir 2. umræðu fjárlagafrumvarps 2026. Þar var bent á að fjárveitingar til tónlistarskóla á framhaldsstigi sem njóta stuðnings ríkisins hafi verið að dragast saman miðað við launaþróun, allt frá því að samningur um skyldur ríkisins að þessu leyti var fyrst gerður árið 2011. Fyrir vikið hefur rekstur þeirra verið mjög erfiður, skólagjöld hafa stórhækkað og nemendum í þessu mikilvæga námi hefur fækkað.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga ráðstafar árlegu framlagi ríkisins til sveitarfélaga í samræmi við reglur sem innviðaráðherra setur og framlag ríkisins tekur breytingum samkvæmt almennri verðlagsuppfærslu fjárlaga hverju sinni.

Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem hér hefur verið gerð grein fyrir og lagðar eru til í sérstöku þingskjali.

Undir álit meiri hlutans skrifa Ragnar Þór Ingólfsson, formaður fjárlaganefndar, Dagur B. Eggertsson, Arna Lára Jónsdóttir, Eiríkur Björn Björgvinsson og Ingvar Þóroddsson.