157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[17:46]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir framsöguna. Ég er með tvö atriði sem mig langar til að spyrja hann aðeins út í. Það stendur í nefndarálitinu og hv. þingmaður nefndi hér að það væru um 1,7 milljarðar kr. sem færu til skuldbindinga vegna barna sem hafa verið skilgreind með fjölþættan vanda. Ég hef aðeins fylgst með á sveitarfélagastiginu og velti fyrir mér, af því að eins og ég skildi málið átti ríkið að yfirtaka málaflokkinn á miðju þessu ári. Af samtölum mínum við sveitarfélögin get ég ekki séð að ríkið hafi hreinlega tekið við nokkrum sköpuðum hlut því að flest sveitarfélögin gerðu samninga við væntanlega t.d. stofnun eins og Klettabæ og það er gert á ársgrundvelli. Þá langar mig til að spyrja hv. þingmann, því ég hef lítið heyrt af þessu: Hvað er ríkið farið að gera núna til þess að mæta sveitarfélögunum með kostnað vegna barna með fjölþættan vanda? Eru þessir 1,7 milljarðar viðbót við einhverjar tölur, sem ég hef reyndar ekki séð en kunna að vera til? Og hvernig hefur gengið varðandi sveitarfélögin? Er búið að taka yfir megnið af þessari skuldbindingu eða er þetta eitthvað sem á að gerast á komandi ári?