samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.
Virðulegi forseti. Ég vildi vekja athygli forseta á því að í ljósi þess að hér kynnti hæstv. utanríkisráðherra og atvinnuvegaráðherra af hinu alkunna lítillæti ríkisstjórnarinnar sögulegan samning um makrílsamninga milli strandríkja. Við fjölluðum um það á utanríkismálafundi í morgun og ég þakka fyrir þær upplýsingar. Ég get svo sem sagt að upplýsingagjöf ráðuneytisins sé með ágætum. Við höfum hins vegar ítrekað tekið samtalið á liðnum mánuðum um stöðuga kröfu ráðuneytisins um að binda allt trúnaði þegar við erum í raun og veru að tala meira um eðlilegt og raunverulegt samráð og skort á því. Ég vil þess vegna vekja athygli forseta á því að það sé mikilvægur þáttur í þessu. Fulltrúar minni hlutans lögðu fram bókun á þessum fundi þar sem við gagnrýnum harðlega að utanríkismálanefnd hafi ekki verið upplýst um gerð og efni samkomulagsins um makrílveiðar, (Forseti hringir.) sem varðar efnahagslega mikilvæga hagsmuni Íslands, sem raunverulegt samráð. (Forseti hringir.) Ég vildi bara koma hingað upp undir þessum lið og vekja athygli forseta á því að þetta er málefni sem við þurfum að taka til umræðu við framkvæmdarvaldið.