157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.

[11:50]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það er ótrúlegt að þingmenn sjái það í fjölmiðlum að búið sé að gera samning sem varðar gríðarlega hagsmuni íslensku þjóðarinnar. Hér hefur verið farið yfir 24. gr. í þingsköpum, og hver og einn getur farið yfir það. Sú grein er skýr. Þrátt fyrir að hæstv. ráðherra reyni nú eins og oft áður að tína til eitthvað annað, sem er ekki sambærilegt, en við getum rætt það seinna, þá breytir það því ekki að hér er um hagsmuni íslensku þjóðarinnar að ræða. Meira að segja stjórnarliðar, hv. þm. Sigurjón Þórðarson, formaður atvinnumálanefndar, benda réttilega á að hér sé verið að veikja stöðu Íslands. Það er verið að ganga gegn þeim prinsippum sem við höfum staðið fyrir, það er verið að minnka aflahlutdeildina. Og það var ekki rætt einu sinni, virðulegi forseti, við hv. utanríkismálanefnd áður en þetta var klárað.