samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.
Virðulegur forseti. Mér finnst ekki rétt að fjalla efnislega um þann samning sem hér hefur verið gerður undir þessum lið sem fjallar um fundarstjórn forseta og það er auðvitað ýmislegt fullyrt um samráð eða samráðsleysi, stundum af hálfu fólks sem á ekki sæti í utanríkismálanefnd eða hefur ekki setið umræddan fund. En eins og fram kom þá voru fiskveiðisamningar til umræðu á fundi nefndarinnar 10. nóvember. Um leið og fréttir bárust af því að þessi samningur hafi verið gerður þá óskaði ég eftir fundi með hæstv. utanríkisráðherra sem var haldinn nú í morgun og ég þakka hæstv. utanríkisráðherra kærlega fyrir að bregðast svona hratt við. Líkt og fram hefur komið þá kom fram bókun á fundi nefndarinnar þar sem samráðsleysi er gagnrýnt og auðvitað hefur fólk hvert sína skoðun á því. En ég fyrir mitt leyti mun alltaf vinna að því að hafa samráð við nefndina frá ráðherra eins gott og hægt er og vinna með öðrum þingmönnum í því að hafa þessi mál í eins góðum farvegi og hugsast getur.