157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.

[11:54]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti tekur fram að hér er verið að taka til máls undir liðnum fundarstjórn forseta. Það er eðlilegt að þar séu gerðar athugasemdir við störf þingnefnda, samráðsskyldu og upplýsingaskyldu, en efni þess máls sem hér er til umfjöllunar verður að ræðast með öðrum hætti en undir þessum lið.