157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.

[11:55]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hér er á ferðinni samningur sem er ekki alhliða samningur milli allra strandveiðiþjóðanna um nýtingu á makrílstofninum. Það er eitt ríkjasamband og tvær fiskveiðiþjóðir sem standa fyrir utan hann. Þetta er ekki samningur sem nær utan um markmið um að nýta makrílstofninn á sjálfbæran hátt. Þetta er ekki samningur sem tryggir góð samskipti okkar til framtíðar við Grænlendinga. Þetta er samningur sem gefur eftir um 35%, yfir þriðjung, af kröfum Íslendinga til makrílstofnsins.

Virðulegur forseti. Varðandi fundarstjórn forseta þá held ég að það hefði verið tilhlýðilegt að þetta hefði verið rætt betur og í betra samráði þegar svona samningar eru gerðir fyrir hönd Íslands.