samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.
Frú forseti. Ég er að velta fyrir mér: Á hvaða vegferð er hagsmunagæsla Íslands í utanríkismálum? Á hvaða vegferð erum við þar? Hæstv. utanríkisráðherra fer erlendis og skrifar undir þennan samning án þess að tala við kóng eða prest. Og hvernig er samningurinn? Hann er ekki einu sinni fyrir alla aðila. Í mörg ár er búið að reyna að ná samningum og allt í einu er bara skrifað undir. Og hvernig er hagsmunagæslan? Hver er hagsmunagæslan? Tveir þriðju hlutar af veiðinni í norskri lögsögu, sem er nú hávaðinn af þessari veiði, eiga að fara til vinnslu í Noregi, eru skyldaðir til að selja í Noregi. Er það ekki rétt, hæstv. utanríkisráðherra? Þú mótmæltir því í gær. Ég vil fá leiðréttingu á þessu. Ef svo er þá er þetta alvarlegt fyrir íslenska vinnslu hér innan lands. Þessi fiskur verður ekki unninn á Íslandi sem verður seldur og skyldaður til að selja í Noregi.