157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

ssamkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.

[11:57]
Horfa

Jón Gnarr (V):

Frú forseti. Ég kem hér fram undir liðnum fundarstjórn forseta til að ítreka enn og aftur ánægju mína með góða fundarstjórn hér í þessum sal. Ég hef áður sagt að mér finnist fundarstjórn hér til mikils sóma. Mér finnst það líka sjást á virðingu fundarmanna fyrir fundarstjórninni að hún er styrk, hún er skýr og hún er góð, og ekki fullkomin auðvitað en til fyrirmyndar. Ég hef setið á mörgum fundum sem hafa verið án fundarstjórnar, algjörlega stjórnlausir, og ekki til eftirbreytni. Þannig að ég þakka bara kærlega enn og aftur fyrir frábæra fundarstjórn. — Takk fyrir.