157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.

[12:02]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Hér koma hv. þingmenn og hæstv. ráðherra og gera athugasemdir við það að við þingmenn sem sitjum ekki í viðkomandi nefnd höfum skoðanir á störfum þingsins og bendum á 24. gr. í þingsköpum. Ég vek athygli á þessu. Við þurfum ekkert að sitja fundi nefndarinnar. Við getum bara hlustað á hv. þingmenn sem eru í nefndinni og skoðað fjölmiðla til að sjá hvað þarna fór fram. Við erum að gera athugasemdir við það. Það að reyna að múlbinda okkur er áhugavert, eins og er verið að múlbinda hv. formann atvinnuveganefndar og ég bið nú hæstv. ráðherra að gera þetta ekki alveg svona fyrir framan okkur. En það er áhugavert að vita hvað menn ætla að veiða í færeyskri lögsögu. Ég vek athygli á því að ástæðan fyrir því að það er verið að taka þessa umræðu hér er sú að hún hefur ekki verið tekin í hv. utanríkismálanefnd, í þessu máli sem varðar gríðarlega mikla hagsmuni. Og svo koma stjórnarliðar fram (Forseti hringir.) — virðulegi forseti, ég veit að ég hef nógan tíma, ég fylgdist með hæstv. utanríkisráðherra áðan — í þessu risamáli og gera athugasemdir við að hv. þingmenn (Forseti hringir.) hafi skoðanir á því að ekki sé farið eftir þingsköpum þegar það varðar þessa miklu hagsmuni íslensku þjóðarinnar. (Forseti hringir.) Það er áhugavert og ég hvet forseta til að skóla stjórnarþingmenn og hæstv. ráðherra aðeins til.