samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.
Virðulegur forseti. Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem slíkir samningar eru gerðir og hvað þá að slíkar viðræður séu í gangi. Ég vil taka undir með þeim hv. þingmönnum sem hafa bent á það að svona viðræður séu búnar að vera í gangi í mörg ár. Við erum búin að eiga í samningaviðræðum um makríl í síðastliðin 15 ár. Við eigum í stöðugum samningum og samningaviðræðum varðandi norsk-íslenska síld og kolmunna. Við eigum líka í samningaviðræðum við Grænlendinga og Norðmenn um loðnu. Það er nefnilega þannig að sá sem hér stendur þekkir ágætlega til þessara samningaviðræðna og ég veit það að norska samninganefndin fer ekki neitt án þess að hafa norska iðnaðinn með sér og heldur honum þétt sér við hlið þegar hún er að semja um slíka stofna. Norski iðnaðurinn er alltaf með. Mér finnst að hér hafi orðið misbrestur, það hversu lítið samráð er sérstaklega við þingið — það er ekki nóg að segja að það séu samningaviðræður í gangi, (Forseti hringir.) sem eru alltaf í gangi — og samráðsleysi við iðnaðinn líka og það er miður.