samkomulag um skiptingu og stjórn makrílstofnsins.
Virðulegur forseti. Ég þakka þessa góðu umræðu og ítreka vilja formannsins um að láta störf utanríkismálanefndar ganga þannig að þau nýtist öllum þeim þingmönnum sem þar sitja. Ég vil hins vegar segja að það hefur af og til komið upp sú staða að hér í umræðu hafa komið upp þingmenn, ég er ekki að segja í þessari umræðu en öðrum, og haldið því fram að eitthvað hafi eða hafi ekki verið rætt á fundi utanríkismálanefndar. Og það eru kannski þingmenn sem eiga ekki sæti í nefndinni, hafa ekki tekið þátt í störfum hennar. Þegar það er ekki rétt þá getur kannski formanni verið dálítill vandi á höndum af því ef um er að ræða mál sem hafa verið rædd á fundi utanríkismálanefndar í trúnaði þá er erfitt að leiðrétta þær rangfærslur, ef um rangfærslur er að ræða, án þess að brjóta þann trúnað. Þannig að ég bið þingið að sýna þessari stöðu ákveðinn skilning.