157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[12:15]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við erum hér að taka fyrir og greiða atkvæði um fjáraukalög sem fela í sér 100 milljarða kr. útgjaldaaukningu, sem eru væntanlega ein stærstu fjáraukalög sem við höfum séð. Umræðan hefur auðvitað ekki verið mikil en ég vil þó vekja athygli á því að við í minni hlutanum höfum mjög miklar áhyggjur af því á hvaða vegferð hæstv. ríkisstjórn er. Við munum að hún byrjaði á því að brjóta lög um opinber fjármál. Nú er það þannig, virðulegi forseti, að það er vel greint í greinargerðinni hvert hlutverk fjáraukalaga er og til að gera langa sögu stutta þá er eiginlega ekkert af útgjaldatilefnunum sem eiga heima þar miðað við þá skilgreiningu sem er í frumvarpinu. Eru einhver fordæmi hvað þetta varðar? Örugglega. En þegar við horfum á lögbrotin, þegar við horfum á það (Forseti hringir.) að menn eru hættir með varasjóði í nafni hagræðingar sem er ekki hagræðing og við sjáum fjáraukalögin núna og vinnubrögðin í kringum þau af hálfu hæstv. ríkisstjórnar, (Forseti hringir.) þá er full ástæða til að hafa mjög miklar áhyggjur af því á hvaða vegferð við erum þegar kemur að opinberum fjármálum.