157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[12:16]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Mig langar í örstuttu máli að ræða aðeins um þennan fjárauka sem við erum að fara að greiða hér atkvæði um, sem byggist náttúrlega á fjárlögum ársins 2025 sem voru gerð hér í starfsstjórn síðustu ríkisstjórnar. Það hefur mikið verið talað um hjá hæstv. ríkisstjórn að það sé verið að ná góðum árangri í rekstri, það sé verið að ná hallanum niður um helming. En hér er alveg ljóst þegar maður horfir á endurmetnar afkomuhorfur ársins 2025, að halli ársins er áætlaður 38 milljarðar sem er á pari, virðulegur forseti, við þann halla sem gert er ráð fyrir í fjárlögum ársins 2026.