157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[12:19]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Þingflokkur Viðreisnar hyggst að sjálfsögðu greiða atkvæði með fjórða fjáraukalagafrumvarpinu sem við hér munum greiða atkvæði um. Í samræmi við lög um opinber fjármál er hér verið að bregðast við óvæntum og ófyrirséðum útgjaldatilefnum. Við erum til að mynda með 23,9 milljarða í aukin vaxtagjöld og 43,6 milljarða sökum hækkunar lífeyrisskuldbindinga ríkisins. Af þeim 30 milljörðum sem eftir standa erum við m.a. með 5 milljarða vegna fjölgunar endurhæfingarlífeyrisþega. Það eru að einhverju leyti góðar fréttir. Það er vísbending um að það sé þróun í gangi þannig að við fáum mögulega færri sem þurfa að enda á örorku sökum þessa. Það er því mögulega góð þróun þó að við þurfum vissulega að greiða atkvæði um það hér í fjárauka.

Ég get alveg tekið undir með hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni að fjárlög seinasta árs eru ekkert að eldast svakalega illa, en þau eru samt ekkert að eldast betur en það að við þurfum vissulega að greiða atkvæði um 100 millj. kr. fjárauka. (Gripið fram í.)