fjáraukalög IV 2025.
Virðulegur forseti. Það er með bæði gleði og stolti sem ég og Samfylkingin munum greiða þessum fjárauka atkvæði þó að hann sé kannski ekki innblástur beinlínis. En ef eitthvað er hægt að kalla tiltekt þá er það einmitt þessi fjárauki. Ég vil vekja sérstaka athygli á því að þó að það virðist sem vaxtagreiðslur ríkissjóðs séu að aukast gríðarlega, og þær gera það innan A1-hlutans, að þá ef horft er á samstæðuna, A-hlutann, þá eru skuldir ríkissjóðs að lækka vegna tiltektar, jú, uppgjörsins á ÍL-sjóði. Það munar um minna vegna þess að þetta er um 6% af landsframleiðslu sem eru tæpir 300 milljarðar. Þannig að þó að þetta komi svona út í þessum bókum og við séum að samþykkja það þá er þetta gott fyrir heildina. Það er nú einmitt það sem einkennir mjög margt í störfum þessarar ríkisstjórnar.