fjáraukalög IV 2025.
Frú forseti. Við erum að fara að greiða atkvæði um þennan fjárauka. Það sem einkennir hann helst, frú forseti, og bjargar raunverulega fjármálum þessa árs er að það eru aukin umsvif í atvinnulífinu. Það voru meiri umsvif en búist var við sem veldur því að hallinn verður 38 milljarðar á næsta ári, áætlað. En þessi auknu umsvif sem orðið hafa á þessu ári eru ekki sjálfgefin á næsta ári. Það er það sem ég vil helst vara við. Það er gert ráð fyrir halla á næsta ári en það eru blikur á lofti, frú forseti, um næsta ár. Ég bendi bara á að það eru áföll í iðnaði, það eru skattar í sjávarútvegi og það eru tollar í iðnaði og margt af þessu er raunverulega aðgerðir stjórnvalda sem geta valdið því að umsvifin á næsta ári verða ekki með sama hætti og eru að bjarga okkur á þessu ári, bjarga fjárlögunum á þessu ári.