157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[12:23]
Horfa

Ragnar Þór Ingólfsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég er stoltur af því fyrir hönd Flokks fólksins að leggja þetta fram og við munum auðvitað samþykkja fjáraukann. Það er ekkert í þessum fjárauka sem er öðruvísi en hefur verið í fjáraukum síðustu ára. Þetta eru ófyrirséð útgjöld, vissulega. Ánægjulegt að sjá t.d. að við erum að bæta í varðandi nemendafjölgun í framhaldsskólum, svo fátt eitt sé nefnt. Aðrir stórir þættir, uppgjör ÍL-sjóðs og auðvitað fleiri þættir sem eru ófyrirséðir eins og lögin um opinber fjármál kveða á um. Ég vænti þess að við séum öll sammála um það. Nefndin hefur rætt einmitt mögulega breytt vinnubrögð í kringum bæði varasjóð og fjáraukana og hefur sammælst um það að fara í skoðun á þessu strax á nýju ári. (Forseti hringir.) Ég hlakka til þeirrar vinnu með hv. fjárlaganefnd og lýsi yfir ánægju með (Forseti hringir.) hvað vinnan hefur almennt gengið vel á þessu hausti.