fjáraukalög IV 2025.
Virðulegi forseti. Ég hvet hv. þingmenn og þá sem hafa áhuga á málinu til að lesa greinargerð frumvarpsins, á bls. 45 um hlutverk fjáraukalaga og síðan útgjaldaliðina á bls. 48. Svo geta allir myndað sér sjálfir skoðun á því hvort þarna fari saman hljóð og mynd. Afkoman er miklu betri en ætlað var, 73 milljörðum meiri tekjur. Hallinn var áætlaður 63 þannig að ef ekkert hefði verið að gert hefðu þessi fjárlög verið hallalaus. En það er einhver ný vídd í ósvífni að koma hér upp og eigna sér ÍL-sjóðinn, sérstaklega í ljósi þess að þegar hv. stjórnarþingmenn voru í stjórnarandstöðu úthúðuðu þeir fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokks, Bjarna Benediktssyni, úthúðuðu honum þegar hann fór í þessa vegferð sem er að skila þessari niðurstöðu.
Virðulegi forseti. Það veldur mér nokkrum áhyggjum að hlusta hér á hv. stjórnarþingmenn gera lítið úr þessu, (Forseti hringir.) gera lítið úr þeim áhyggjum að við séum ekki (Forseti hringir.) innan þess ramma sem er skrifaður út í greinargerð frumvarpsins. Það að ekki sé verið að fara eftir lögum um opinber fjármál hjá þessari ríkisstjórn gerir áhyggjur mínar enn þá meiri.