157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

fjáraukalög IV 2025.

299. mál
[12:26]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er rétt að tekjurnar fyrir árið 2005 eru 70 og eitthvað milljörðum meiri en gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu í fyrra. En mér finnst það sérkennilegur málflutningur að tala um að ef við værum ekkert að samþykkja fjárauka þá væru fjárlögin í ár hallalaus. Það er eins og að segja að ef ég myndi sleppa því að borga reikningana mína, þá hefði ég pening til að spara. (Gripið fram í.) Svo getum við öll fagnað því að það var gott að það var farið af stað í vegferðina á síðasta kjörtímabili að gera upp ÍL-sjóð og við getum svo sannarlega fagnað því að þessi ríkisstjórn sé að klára það verk. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)