157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[12:33]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Rétt á eftir verða greidd atkvæði um hvort það eigi að hækka skattbyrði þeirra sem leigja frá sér fasteignir um 50%, 50% skattahækkun í boði hæstv. ríkisstjórnar. Enn ein skattahækkunin á fjölskyldurnar í landinu, fjölskyldurnar sem eru að reyna að bjarga sér, ná endum saman, 50% skattahækkun. Sem betur fer tókst að afstýra stórkostlegu skattaslysi í þessu máli þar sem meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar féllst á að falla frá breytingum á erfðafjárskatti, sem betur fer. En ég vil líka benda á annað, að við erum að fara að greiða hér atkvæði um svo sem ágætismál en það kom til nefndarinnar 11. desember. Þann 11. desember kom það sem minnisblað frá hæstv. fjármálaráðherra sem er hættur að senda frumvörp til þingsins, hann sendir þau bara í minnisblöðum.