skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Virðulegur forseti. Við erum að fara að greiða atkvæði um fleiri skattahækkanir þrátt fyrir loforð alla vega Samfylkingarinnar og Viðreisnar, kosningaloforð þessara flokka um að hækka ekki skatta. Ég vona að við fáum að heyra í atkvæðaskýringum á eftir af hverju verið er að svíkja þessi loforð því að mér finnst við ekki hafa fengið að heyra það. Ég upplifi líka að fulltrúar meiri hlutans haldi stundum að þau séu að leggja fram eitthvað annað en þau eru raunverulega að leggja fram, til að mynda skattahækkun á leigutekjum einstaklinga. Hverjir lenda í þessu? Þeir sem eru að leigja út eigin íbúðir eða kannski leigja út íbúð í eigin húsnæði. Það eru þeir sem eru að fara að lenda í þessu því þeir sem eiga fleiri eignir eru auðvitað með þetta í félögum og þeir fá heldur ekki þessa skattbyrði, skattprósentu, þannig að þetta eru einstaklingarnir sem á að skattleggja hér seinna í dag.