skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).
Frú forseti. Hér eru stórfelldar skattahækkanir á venjulegt fólk í pípunum. Hér er verið að hækka skatta á leigutekjur og hliðaráhrif verða að vextir og verðbólga munu hækka og leiguverð mun hækka. Það er alveg ljóst í allri venjulegri hagfræði. Að reyna að handstýra íbúðamarkaðnum með þessum hætti hefur aldrei gefið góða raun. Til þess að ná einhverjum böndum á markaðinn þarf að sjálfsögðu bara að byggja meira og byggja íbúðir sem fólk vill búa í en ekki íbúðir sem eru ekki með neinum bílastæðum eins og borgin keyrir á í dag.