157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[12:36]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Það er mikil furða að ríkisstjórnin skuli halda áfram þeirri vegferð sinni að hækka skatta á almenning í þessu landi. En það sem ekki minna er um vert: Hvað ætli sé þverpólitísk samstaða um að sé lang, langstærsta hagsmunamál allra heimila í landinu? Að ná tökum á verðbólgu og vöxtum. Samt sem áður á að lögfesta hér í dag og næstu daga aðgerðir sem munu að öllum líkindum auka verðbólgu. Það er með ólíkindum að það sé jólagjöfin til allra heimila í landinu frá þessari ríkisstjórn.