157. löggjafarþing — 51. fundur,  17. des. 2025.

skattar, gjöld o.fl. (tollar, leigutekjur o.fl.).

257. mál
[12:38]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég tek undir að lang, langstærsta hagsmunamálið fyrir íslenskar fjölskyldur, íslensk heimili og fyrirtækin í landinu er að það ríki stöðugleiki, að það sé líka samhent ríkisstjórn sem komi ákvörðunum í gegn en ekki síður það að við sjáum verðbólgu og vexti lækka og nú hefur það gerst samfellt allt árið. Hér er verið að taka til í skattkerfinu. Hér er verið að einfalda hluti. Það er verið að búa í haginn til framtíðar þannig að við getum árið 2027 skilað hallalausum fjárlögum. Það er mesta hagsmunagæslan fyrir íslensk heimili að við stuðlum að því til skemmri og lengri tíma. Auðvitað þarf ákveðna tiltekt eftir síðustu ár. Það þarf að laga ákveðna hluti. Sumt er ekkert endilega best í heimi en það þarf að fara í ákveðna hluti til að laga hlutina til þess að við getum skilað hallalausum fjárlögum 2027, þannig að við getum haldið áfram að lækka verðbólgu og vexti fyrir fólkið í landinu. Síðan getum við talað um önnur verkefni til lengri tíma, hvort sem það er að bæta velferðarkerfið, innviðina eða lækka skatta.